156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[10:46]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Það hefur engum dulist öflug varðstaða minni hlutans á þingi um sérhagsmunina, engum, en þessi fordæmalausa og alvarlega uppákoma í gærkvöldi gerir eiginlega að verkum að það er að teiknast upp önnur mynd til viðbótar. Hún er sú að þingmenn Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknarflokks virðast veigra sér við að vera á rauða takkanum þegar kemur að afgreiðslu á leiðréttingu veiðigjalda, veigra sér við að hafna þessu máli með því að vera á rauða takkanum fyrir augu almennings. Það er staðan. Minni hlutinn þorir ekki að fá þetta mál til atkvæðagreiðslu í þingsal. En líkt og hæstv. forsætisráðherra kom inn á og fleiri þingmenn meiri hlutans þá munum við klára þetta mál. Við munum verja þingræðið og við munum verja lýðræðið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)