156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[10:47]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Hv. þingmaður og formaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, lagði fram breytingartillögu við veiðigjaldafrumvarpið á þingi í gær. Það er auðvitað áhugavert að fylgjast með þessu leikriti öllu saman. Á sama tíma og lögð er fram breytingartillaga á þingfundi stendur sami flokkur, sama fólkið, í málþófi og kemur í veg fyrir að málið komist til 3. umræðu og þar af leiðandi til þingnefndar þar sem hægt er að taka slíka breytingartillögu fyrir. Sama leikrit á sér stað þegar verið er að kalla eftir að fá fjármálaáætlun hér aftur á dagskrá, sem við þurfum auðvitað að klára og þyrftum að klára, þegar það liggur fyrir að þau ætla ekkert að hleypa því í gegn nema fá þinglokasamning sem er algerlega skrifaður á þeirra forsendum, stjórnarandstöðunnar. Þetta er auðvitað fordæmalaust og þetta er galið ástand sem við stöndum frammi fyrir.