156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[10:48]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil fyrst óska eftir að forseti komi skilaboðum til hv. þingflokksformanns Flokks fólksins varðandi fyrri innkomu hv. þingmanns hér í fundarstjórn þar sem hann brigslaði þingflokksformönnum stjórnarandstöðu um trúnaðarbrest gagnvart samningaviðræðum þingflokksformanna. Það er búið að fara býsna nærri því bara hér í þessari umræðu í dag og svo ég taki sem dæmi þá hafa hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, og hæstv. ráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir stigið rækilega yfir þá línu gagnvart þeim samtölum sem hafa átt sér stað hjá þingflokksformönnum. Ég held að það skipti máli að við sem fyllum hóp þingflokksformanna reynum að gæta okkar í þessum efnum og það á við um okkur alla. Staðan er viðkvæm eins og við þekkjum og hefur verið. Ég sat ekki fund formanna flokkanna í gær en lýsingar sem hafa komið fram í fjölmiðlum af honum benda nú ekki til þess (Forseti hringir.) að formenn stjórnarflokkanna hafi verið viljugir til frekari samtala hvað það varðar að leiða fram lausn í því máli sem hér er umdeildast. (Forseti hringir.)

Að lokum, til hæstv. atvinnuvegaráðherra: Ég mun ekki veigra mér við að leggjast gegn þessu illa unna máli þegar það gengur til atkvæða, gerist það hér áður en þingi verður slitið.