156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[10:50]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Lýðræði snýst ekki bara um að meiri hlutinn ráði. Lýðræði snýst líka um að minni hlutinn fái að tjá sig [Hlátur í þingsal.] og að minni hlutinn fái að hafa áhrif. Alþingi Íslendinga byggir á þeirri hugsun, enda hafa fulltrúar í meiri og minni hluta alveg jafnt lýðræðislegt umboð. Málamiðlun á því að vera leiðarljós í þingstörfum okkar í þessu húsi og pólitík er málamiðlun. Það ástand sem hér er orðið er fordæmalaust, segir hæstv. forsætisráðherra, og ég tek undir það. Hér er orðið fordæmalaust ástand en það skrifast á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Alla tíð, (Forseti hringir.) í öllum þeim erfiðu málum sem Alþingi hefur tekist á við í gegnum tíðina, hafa þingmenn sýnt þroska, virðingu og skilning á því að þingið á að vera vettvangur umræðu en ekki þöggunar. (Gripið fram í.) (Forseti hringir.) Hingað til hefur meiri hlutinn virt þá hefð að leita sátta og samninga í stað þess að beita valdi til þess að þagga niður í minni hlutanum, allt þar til ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við. (Forseti hringir.)

Hvað varðar þá atburðarás sem varð í gærkvöldi (Forseti hringir.) þá vil ég fá að beina þeirri spurningu til forseta þings: Af hverju upplýsti forseti ekki um lengd þingfundar í gær? Af hverju var ekkert samtal hér (Forseti hringir.) á milli forseta og varaforseta?

(Forseti (ÞSv): Ræðutími í liðnum fundarstjórn forseta er ein mínúta, ekki tvær. Ég bið þingmenn um að virða ræðutímann.)