156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[10:52]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Mér þykir ótrúlegt að formaður Sjálfstæðisflokksins komi hér og lýsi því yfir að það sé eðlilegt sem gerðist í gærkvöldi af hálfu þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins af því að einhver hafi ekki verið upplýstur um stöðu mála. Allir sem þekkja til þingstarfa vita að varaforsetar slíta ekki fundi nema eftir samtal við forseta. Þetta er alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks sem hefur í gegnum tíðina talið sig vera ábyrgan, stjórntækan flokk sem hægt væri að treysta á á lýðræðislegum grunni. Við þetta vil ég bæta að við erum ekki í stjórnarmyndunarviðræðum. Það virkar ekki þannig eftir að ný ríkisstjórn kemur til valda að fólk setjist niður og formenn Sjálfstæðisflokks, formenn Miðflokks og formenn Framsóknarflokks ákveði hvar línan sé dregin og segi: Hingað en ekki lengra. Það sem hv. þingmaður er að verða vitni að er ríkisstjórn sem treystir sér til að stýra landinu, treystir sér til að virða lýðræðislegt umboð og veit sannarlega hvar línan liggur. Sú lína er ekki dregin af formanni Sjálfstæðisflokksins. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)