slit þingfundar.
Virðulegi forseti. Vanvirðing, trúnaðarbrestur. Það eru þau orð sem eru í mínum huga núna. Vanvirðing við forseta Alþingis, vanvirðing við Alþingi Íslendinga. Við skulum hafa það í huga að starfsáætlun Alþingis var tekin úr sambandi þann 6. júní og forseti og varaforsetar stjórnarliða hafa staðið vaktina hér um nætur og um helgar. Ef virðulegir varaforsetar eru óvissir í sínum störfum í forsetastól þá er leitað til forseta Alþingis eða starfsfólks þingfundaskrifstofu eftir svörum og það hefur alltaf reynst vel. Hv. þm. Hildur Sverrisdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins og 5. varaforseti Alþingis, er ekki ný á þingi, skynsöm kona sem veit betur. Mig langar að spyrja virðulegan forseta: Eru fordæmi fyrir því að þingflokksformaður eigi sæti í forsætisnefnd? (Gripið fram í.) Hér hefur (Forseti hringir.) stjórnarandstaða rætt mikið um hefðir og venjur. Mér þætti vænt um að fá svar við þessari spurningu.