slit þingfundar.
Frú forseti. Ég ætla að viðurkenna að ég hlakkaði mjög mikið til þess að verða alþingismaður og var í rauninni kannski búin að bíða eftir því alla mína ævi. Ég hélt að við störfuðum á stað þar sem virðing væri borin fyrir hefðum og venjum. Mér þykir ofboðslega vænt um Alþingi. Mér þykir vænt um þingmenn. Mér þykir vænt um að fá að standa í þessari pontu. Það er ekki sjálfgefið. Það eru forréttindi að fá að standa í þessari pontu og þess vegna er ég döpur í dag og hrygg yfir því að við séum komin á þennan stað í þessum sal. Við í meiri hlutanum erum búin að vanda vel til verka í þinglegri meðferð þessa máls sem hér um ræðir. Við höfum staðið keik sem einn maður þegar kemur að því að klára þetta mál og við munum gera það áfram. En að tala hér um óvönduð vinnubrögð þegar við höfum setið undir málflutningi minni hlutans á málefnalegum grunni af okkar hálfu er ótrúlegt. Við finnum fyrir trúnaðarbrestinum sem ríkir í þessum sal og nú er undir okkur komið að leiða þessi mál í jörð svo að sómi sé að, (Forseti hringir.) svo að virðing Alþingis, lýðræðisins og þingræðisins sé varin. Það er það sem er undir hér.