156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[11:00]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Skilnaðarkvíði birtist í mörgum myndum en hjá Sjálfstæðisflokknum hefur skilnaðarkvíði þeirra við að missa völdin birst mér á stórfurðulegan hátt. Um það sem ég varð vitni að í gærkvöldi verð ég að segja að viðkomandi forseti, sem var að gera það sem ég tel valdarán hér í þinginu, ætti hreinlega að segja af sér vegna þess að þetta er grafalvarlegt mál. Að brjóta svona gjörsamlega gegn lýðræðinu í landinu er alvarlegt mál. Á hvaða vegferð er Sjálfstæðisflokkurinn virkilega? Ætla þeir virkilega að halda áfram að koma hingað upp í pontu og reyna að verja svona gjörning? Ég sé það alveg fyrir mér á fyrri þingum hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefði tekið því ef einhver hefði íhugað, hvað þá framkvæmt svona hluti. (Forseti hringir.) Ég vona svo heitt og innilega að þeir kunni að skammast sín en ég efast um það.