156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[11:01]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Hvaða nafni getum við kallað það þegar réttkjörinn meiri hluti nær ekki sínum málum fram? Árið 2007 var þingskapalögum breytt af því að hér stóðu menn í pontu klukkutímum saman í andsvörum við sjálfan sig. Þá var brugðið á það ráð að breyta þingskapalögum til þess að koma í veg fyrir það en menn sjá glufur á þeim þingskapalögum sem eru til staðar núna og misnota þau. Ég skil það vel að Miðflokkurinn geri þetta, hann hefur svo sem gert það áður, en að horfa á borgaralega flokka eins og Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn misnota þingsköp svona herfilega — ég á erfitt með að sjá þetta. Sjálfstæðisflokkurinn í mínum huga verður eins og aðgerðasinnar á Austurvelli. Þau ætla bara að koma í veg fyrir að ríkisstjórn og réttkjörinn meiri hluti fái sitt fram. (Forseti hringir.) Hvað kallast þetta, hv. þingmenn?