slit þingfundar.
Frú forseti. Þetta er sannarlega sorglegur dagur og sorglegir tímar hér á Alþingi þar sem við upplifum vanvirðingu við Alþingi Íslendinga. Hér er inni er fordæmalaus minni hluti sem ætlar sér ekki að leyfa Alþingi að vinna sín verk sem meiri hluti er fyrir. Málum er haldið í málþófi, ekki bara einu máli heldur fjölmörgum málum, sem endurspeglast í þeirri stöðu sem uppi er í dag. Það þarf fleiri en einn til að semja. Það þarf fleiri en einn til að setjast niður en það þarf ekki að semja um málin. Við afgreiðum málin hér í þessum þingsal. Mér sýnist að minni hlutinn sé algjörlega ófær um að semja og komast að einhverri niðurstöðu í sínum málum sem endurspeglar þá stöðu sem uppi er í dag. Tökum nú höndum saman og klárum þetta þing.