156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[11:08]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Staðan á hinu háa Alþingi er vissulega áhyggjuefni en hún er síður áhyggjuefni fyrir meiri hlutann. Við munum með einum eða öðrum hætti ná okkar málum í gegn. Staðan er mjög mikið áhyggjuefni fyrir minni hlutann sem virðir ekki þær leikreglur sem eru og hafa verið í heiðri hafðar um langt skeið heldur gerir ekkert með þær; misnotar þingsköp og heldur málum í gíslingu, hvort sem það er fríverslunarsamningur við Taíland eða málið sem hefur verið mest til umræðu og slegið Íslandsmet. Þetta er áhyggjuefni fyrir þá flokka sem einhvern tíma kenndu sig við lýðræði en eru orðnir aðgerðaflokkar fyrir auðmenn landsins, neita að koma málum í gegn og setja algjöran tappa í afgreiðslu allra mála á þingi. Það er alveg ljóst hver ástæðan er. (Forseti hringir.) Ástæðan er sérhagsmunagæsla Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins.