156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[11:10]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Mér finnst þetta vera sorgardagur á Alþingi í dag, hvernig við alþingismenn komum fram gagnvart þjóð og þingi. Ég hef verið í nokkur ár á Alþingi áður, 12 ár og er á þrettánda ári og ég hef ekki upplifað svona stemningu hér í þingsal þó að margt hafi gengið á á þeim árum sem ég hef verið hér á þingi frá 2009–2021. En svona er þetta núna og ég tel mál að linni og við sýnum okkur sjálfum, þjóðinni og lýðræðinu þá virðingu sem hún á skilið. Við getum ekki haldið áfram undir þessari pressu sem hér er í gangi. Þeir sem unnu þessar kosningar og stofnuðu til meiri hluta með ríkisstjórn eiga þann rétt og þjóðin sem kaus þá að fá mál til afgreiðslu. Við getum reynt að ná samkomulagi og höfum reynt það í margar vikur en það er ekki hægt að vera með valdaafsal til minni hlutans við þessar aðstæður. Við erum lýðræðisþjóð og berum virðingu fyrir því hér heima. Það er horft til okkar líka frá öðrum þjóðum í kring hvað er að gerast.