slit þingfundar.
Frú forseti. Þetta hafa verið áhugaverðar umræður, vægast sagt, og vantraustið er algjört á milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Formaður Framsóknarflokksins segir að Framsóknarflokkurinn hafi ekki verið með í þessum vélráðum í gær en það liggur ekki fyrir enn þá af hálfu Miðflokksins hvort þetta hafi verið gert að frumkvæði þess flokks eða hvort sá flokkur hafi verið með í ráðum. Það að slitið sé þingfundi þvert á vilja forseta þingsins er alvarlegra en gerst hefur í þessum þingsal lengi. Að verið sé að gagnrýna það að þingmenn vilji ræða þessa grafalvarlegu stöðu í ræðustól, að þeir megi ekki gera það vegna þess að þingmaðurinn sem sleit fundi er ekki á staðnum — það væri þá kannski hægt að upplýsa okkur um það hvers vegna viðkomandi þingmaður, hv. þm. Hildur Sverrisdóttir, er ekki á staðnum. Það er verulega áhugavert og veldur mér reyndar miklum vonbrigðum að heyra hvernig Sjálfstæðismenn hafa talað hér. Maður hreinlega veltir því fyrir sér hvort Sjálfstæðisflokkurinn sé stjórnlaus, (Forseti hringir.) hvort hann sé algjörlega búinn að færa forystuhlutverkið í stjórnarandstöðu óskorað til Miðflokksins. (Forseti hringir.) Er það staðan? Það er ályktunin sem hægt er að draga af þeim orðum sem fallið hafa. (Forseti hringir.) Við þurfum skýringar frá þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins um hvers vegna fundi var slitið þvert á allar hefðir og venjur. Mér finnst að það þurfi að ganga skrefinu lengra (Forseti hringir.) og biðja þing og þjóð afsökunar á því. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)