156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[11:13]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hv. þingflokksformaður Viðreisnar þarf ekki að hafa áhyggjur af Sjálfstæðisflokknum. Ég held að hann ætti bara að hugsa um sinn eigin flokk. Hér er talað um sorgardag. Hér er talað um fordæmalaust ástand og ég ætla að taka undir það. Hv. þm. Dagur B. Eggertsson sagði hér áðan: Við þurfum að taka stjórn á þinginu. Forsætisráðherra sagði hér fyrr í dag Verkefnið okkar væri að sýna að lýðræðið virki. Og hv. þm. María Rut Kristinsdóttir sagði: Trúnaðarbrestur, við finnum fyrir honum.

Vitið þið bara að við í minni hlutanum erum búin að finna fyrir þessum trúnaðarbresti frá því að þetta þing var sett. Staðan á þinginu í dag er algjörlega á ábyrgð stjórnarmeirihlutans. (Forseti hringir.) Ég held að fólk ætti að líta í eigin barm. Það er þannig á flestum áhöfnum að eftir höfðinu dansa limirnir og ég bendi hér á forsætisráðherra (Forseti hringir.) sem hefði þá getað hagað vinnulagi með öðrum hætti á Alþingi Íslendinga. Þá væri staðan önnur en hún er hér í dag.