fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
[Hljóðupptöku vantar í upphafi ræðu.]
… ekki í því að Alþingi taki yfir tilskipunum frá framkvæmdarvaldinu. Ætli þingið að starfa eins og ríkisstjórn á hverjum tíma ætlast til þá er búið að afnema þingræðið og taka upp tilskipunarvald framkvæmdarvaldsins. Þetta er það sem ég vildi kannski segja hér í byrjun. En ég vil sömuleiðis bregðast við spurningu hv. þm. Sigmars Guðmundssonar, þingflokksformaður Viðreisnar, hér undir lok fyrri fundarstjórnar varðandi það hvort Miðflokkurinn hefði verið upplýstur um áform um að slíta fundi. Varaforsetar sem sitja í forsetastóli hverju sinni stýra fundi og taka ákvarðanir út frá þeim reglum sem viðhafðar eru og hafa verið innleiddar á vettvangi forsætisnefndar. Það eru dæmi þess að varaforsetar hafi slitið fundi áður, tvö sem ég fékk ábendingar um bara rétt í þessu, það má nú fara í gegnum þær upplýsingar og rifja upp. (Forseti hringir.) Ég held að það skipti máli að við reynum að stilla okkur af hér hvað spennustigið varðar því að við erum Alþingi, við ráðum okkur sjálf, það blasir við á grundvelli þeirra reglna sem um okkur gilda. (Forseti hringir.) Framkvæmdarvaldið verður að taka tillit til þess að Alþingi fái að sinna sínum störfum með eðlilegum hætti.