156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[11:49]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Það er rétt hjá hv. þm. Bergþóri Ólasyni að ég óskaði eftir afstöðu Miðflokksins til þess sem gerðist hér í gærkvöldi. Ég get eiginlega ekki lesið annað út úr svörum frá hv. þingmönnum Bergþóri Ólasyni og Karli Gauta Hjaltasyni að þeim finnist þetta ekki mjög alvarlegt sem gerðist hér í gær. Þá þurfum við bara að vera ósammála um það, mjög ósammála um það. Ég vil líka halda því til haga að þingflokksformenn hafa fundað allar helgar undanfarnar vikur inn í nætur til að reyna að ná samkomulagi þannig að allt tal um að hér sé ekki búið að vera að reyna að semja eða að hér hafi menn ekki teygt sig í samningaátt er ofureinfaldlega rangt. Og að hæstv. forsætisráðherra hafi ekki verið hér til að reyna að miðla málum — þetta er bara ekki rétt. Þetta er bara ekki rétt, hv. þm. Karl Gauti Hjaltason.

Ég er sammála því að það er brýnt að ná spennustiginu niður og ég er sammála því að við þurfum að velja orðin okkar vel. (Forseti hringir.) En við skulum hins vegar ekki gera lítið úr því sem gekk hér á í gærkvöldi. Við skulum ekki gera lítið úr því. Það var bara mjög alvarlegt og (Forseti hringir.) það er leitt að Miðflokkurinn sjái það ekki þeim augum.