fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Frú forseti. Ég vil leyfa mér á þessum vettvangi að gagnrýna eiginlega fundarstjórn forseta örlítið, sjaldan sem það gerist með beinum hætti. Það hefði verið, held ég, til bóta að fá annaðhvort formenn eða þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokka hefðu verið upplýstir um áform hæstv. forsætisráðherra um að vera hér með yfirlýsingu við upphaf þingfundar sem var reiknað með að við myndum bregðast við. Það hefði vafalaust gert viðbrögðin þéttari og þingstörfin betri í því samhengi. Ég held að þetta hafi allt saman sloppið til en hvet virðulegan forseta til að hafa það í huga verði yfirlýsingar sem þessar fleiri.
Ég vil jafnframt nefna það hér að mér er það til efs að það hefði verið jafn fast sótt að karlvaraforseta eins og nú er sótt að kvenvaraforseta hefði karlvaraforseti slitið fundi undir miðnætti í gær. (Gripið fram í: Ha?) Í gærkvöldi varð uppákoma sem mér þótti lítill sómi (Forseti hringir.) að. Varaforseti var í pontu og varaforseti sem situr í forsetastóli hverju sinni stýrir fundum. (Forseti hringir.) Ég held að það þurfi margir að hugsa sinn gang af þeim sem hér áttu orðastað í kross eftir að fundi var slitið í gærkvöldi.