fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Virðulegi forseti. Líkt og áður hefur komið fram eru hér uppi fordæmalausir tímar vegna þess að hér á þingi er minni hluti sem virðir ekki þingræðið í landinu, sem leggst gegn því að mál komist til atkvæðagreiðslu í þinginu, fer gegn trúnaðarsamskiptum varðandi forseta, slítur þingfundum án umboðs frá forseta Alþingis. Þetta eru grafalvarleg mál. Hér hefur farið fram lengsta málþóf í sögu þingsins til að stöðva framgöngu þingræðisins. Þetta er alvarleg staða. Og það að ætla að fara að spila enn einn leikinn, hv. þm. Bergþór Ólason, og reyna að setja þessa alvarlegu ákvörðun varaforseta í eitthvert kynjasamhengi er enn eitt „skuespilið“ af hálfu minni hlutans. Fólk verður að bera ábyrgð á þeim ákvörðunum sem það tekur hér og þessi ákvörðun varaforseta í gær er fordæmalaus og grafalvarleg.