156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[11:58]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Talað er um að eitthvað hér sé fordæmalaust. Nú hef ég ekki verið hér um langa hríð svo að ég þekki ekki söguna marga áratugi aftur í tímann en nokkra þó, hafandi fylgst með sem áhugamaður um samfélagsmál í þó nokkuð mörg ár. Ég hygg að það sé fordæmalaust að hæstv. forsætisráðherra geti ekki klárað þinglokasamninga. Ég man ekki í fljótu bragði eftir slíku dæmi. Þá held ég að það sé líka, ef ekki fordæmalaust þá a.m.k. afar fátítt að fjölmiðlar augljóslega viti hvað er að fara að gerast í þessum sal áður en þingmenn gera það. Hér var krökkt af fjölmiðlum sem augljóslega vissu hvað var í uppsiglingu en við þingmenn í salnum, frú forseti, gerðum það ekki og það er ámælisvert.