156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[11:59]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf):

Frú forseti. Hvað er fordæmalaust? Það er auðvitað eitthvað sem á sér ekki fordæmi í þessum sal. Ég hef ekki mikla eða langa þingreynslu en veit þó að það sem er án fordæma í þessum sal er Íslandsmet í 1. umræðu um málið, það er staðreynd. Íslandsmet í málþófi, það er staðreynd. Það er staðreynd að hér hafi ekki tekist að ljúka þinglokasamningum af hálfu stjórnarmeirihlutans vegna andstöðu stjórnarandstöðunnar og vegna þeirrar staðreyndar að stjórnarandstaðan vill gera þinglokasamninga í einu og öllu eftir sinni forskrift. Það er staðreynd.

Annað fordæmalaust atriði er það sem gerðist í gærkvöldi, þar sem þingfundi var slitið þvert gegn vilja forseta þingsins. (Forseti hringir.) Það er fordæmalaust og það er staðreynd.

Að lokum vil ég segja að það er auðvitað alltaf hægt að semja (Forseti hringir.) en sá tími er mjög naumur.