156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:02]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Það virðist vera sem það hafi verið sendur út tölvupóstur til hv. stjórnarþingmanna um að orð dagsins væri fordæmalaust. Hér hefur það ansi oft heyrst að þetta séu fordæmalausir tímar og það er alveg rétt, það eru fordæmalausir tímar að við stöndum hér og það hafa ekki náðst samningar um þinglok. Ég ætla núna að hvetja hæstv. þingflokksformenn og hæstv. ráðherra eða formenn flokkanna að setjast niður og ræða þinglok fyrir alvöru. Nú er búið að boða fund í forsætisnefnd til þess að ræða það sem við höfum verið að ræða núna í morgun og það er vel, en nú skulum við einbeita okkur að því að fara að huga að þinglokum og haga okkur eins og fólk.