fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Virðulegur forseti. Ég sat sem 3. varaforseti Alþingis allt síðasta kjörtímabil og ég held að ég sé sú eina sem er á þingi úr forsætisnefnd síðasta kjörtímabils. Það er staðreynd að þegar fundi er slitið á Alþingi þá á það sér ákveðinn aðdraganda. Þingfundaskrifstofa kemur með skjöl. Hún kemur með upplýsingar um hvað það er sem þarf að lesa upp fyrir slit þingfunda og það er alveg ljóst að engin slík skjöl bárust hv. þingmanni og varaforseta í gærkvöldi. Hér er talað um og fram hefur komið í umræðunni að hv. þingmaður hafi ekki haft neinar upplýsingar um að fundurinn ætti að standa lengur. Forseta Alþingis ber engin skylda til að koma slíkum upplýsingum til varaforseta eða hafa samráð við varaforseta um það. Það var ekki gert á síðasta kjörtímabili og ekkert okkar sem þá sátu í forsætisnefnd, (Forseti hringir.) hv. varaforsetar, kvartaði yfir því. Þannig var þetta. (Forseti hringir.) Það er alveg ljóst að hér var ekki um einhver mistök að ræða. Það var eitthvað allt annað í gangi.