156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:09]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég fylgist með með þessu í forundran eins og flestir landsmenn og sem varaþingmaður og nýr þingmaður hér inni finnst mér þetta áhugaverð staða. En það sem hefur setið í mér og mig langar til að nefna og kannski bara að leggja það fram sem spurningu til stjórnarandstöðunnar er bara: Hvernig viljið þið hafa þetta? Hvert er markmið stjórnarandstöðunnar? Ég vil halda því fram að hér sé bara fullt af góðu fólki sem kemur hér með góðan ásetning og vill ná árangri og vill sinna sínu starfi vel. En ég skil ekki hvernig hv. stjórnarandstaða sér endapunktinn, hvert hún er að fara með þetta. Ætlum við að vera hérna fram í ágúst? Viljið þið 71. gr., hvað viljið þið? Mér finnst mjög mikilvægt að við náum því fram af því að annars náum við ekki samningum. Við erum hér í umboði kjósenda og okkur ber skylda til að vinna af heilindum og virða lýðræðið. Það verður áhugavert hvernig sagan mun dæma okkur seinna meir.