156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:10]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Virðulegur forseti. Ég kem hér upp öðru sinni vegna þess að hv. þingmenn hvetja stjórnarmeirihluta og minni hluta til að tala saman, setjast niður og ræða málin, finna leið til að semja, svona eins og ekkert af þessu hafi átt sér stað síðustu fimm, sex vikurnar eða svo. Við erum hér í fjórðu viku í umræðu um veiðigjöld, fjórðu viku, og þingflokksformenn allra flokka hafa sest niður aftur og aftur í góðri trú og reynt að finna fleti, lagt fram sviðsmyndir, stundum tekið sársaukafullar ákvarðanir í því skyni að reyna að ná fram einhvers konar lendingu en einhvern veginn raknar það alltaf upp. Ég ætla að segja það hér og nú að það stendur ekki á okkur í stjórnarmeirihlutanum að finna þessa leið. Nei. En það verður þá að vera líka á okkar forsendum, (Forseti hringir.) það verður líka að vera þannig að okkar mál séu undir en ekki bara einhver tilbúin mál frá minni hlutanum.