156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:12]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Fordæmalausir tímar og allt það. Ræðum aðeins fordæmi í verklagi í þinginu. Það er það sem er mjög áberandi núna. Síðan starfsáætlun var felld úr gildi 6. júní þá eru mál sem hafa verið að koma, þó ekkert úr velferðarnefnd, ég kannaði það ekki. En opinber fjármál, stöðugleikareglan, málið tekið út úr nefnd 12. júní. Veiðigjöld voru tekin út úr nefnd 14.6. Fjárauki III, 18.6. Raforkulög, raforkuviðskipti sem við kláruðum hérna um helgina, 19.6. Fjármálaáætlun, 23. júní og tíu dögum seinna var hún tekin hérna fyrir á fundi. Strandveiði, hún var tekin út 26. júní. Airbnb-frumvarpið 1. júlí. Það er enn þá verið að taka mál úr nefndum í júlí. Venjulega er það þannig að nefndir klára sín störf í maí og síðan er kannski einn og einn fundur og það er verið að klára málin, (Forseti hringir.) en hér er stöðugt verið að taka út mál. Það er fordæmalaust.