156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:13]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Það hefur verið áhugavert að sitja hérna í morgun. Öllum verður okkur á í lífinu og engin undantekning er sú sem hér stendur. Ég er ekki viss um að hv. varaforseti þingsins í gærkvöldi, Hildur Sverrisdóttir, hafi áttað sig á raunveruleika málsins og alvarleikanum. Ég held að hún væri kona að meiri ef hún kæmi hér, horfðist í augu við okkur og bæðist afsökunar á þessu frumhlaupi. Án efa hefur verið kominn einhver galsi í fólk, ég efast ekkert um það, þegar orðið var miðnætti. Ef hún myndi biðjast afsökunar svo að við gætum bara haldið áfram með þetta. Það er alveg ljóst, hér var vitnað í fjölmiðla og þeir áttuðu sig á alvarleika málsins og aðförinni að lýðræðinu. Þess vegna voru þeir mættir hér í morgun. [Hlátur og háreysti í þingsal.

Er ég með orðið eða einhverjir aðrir?

(Forseti (BHar): Þingmaðurinn sem stendur í púlti hefur orðið. Ég ætla að biðja þingheim um að gefa þingmanninum hljóð.)

Takk fyrir, hæstv. forseti. Vegna orða hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar þá tel ég að hann ætti að vera meira með gleraugun uppi af því að forsætisráðherra hefur verið meira og minna hér í húsi síðustu vikurnar og reynt að semja, reynt að liðka til, án árangurs. Og hvar skyldi ábyrgðin á því liggja?