fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Virðulegi forseti. Sú atburðarás sem hér hefur farið af stað í dag og er stýrt af stjórnarmeirihlutanum er með miklum ólíkindum. Ég vil fá að lesa hér yfirlýsingu frá Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, sem hún birti rétt í þessu. Þar biðst hún afsökunar á því að hafa valdið uppþoti hér í þessum þingsal:
„Fyrir áhugasama um þetta fyrirkomulag þá eru langir þingfundir almennt til miðnættis. Varaforseti á ekki að gefa ræðumanni orðið heldur slíta fundi þegar fullur ræðutími hans með andsvörum myndi ekki nást fyrir þann tíma. Forsætisnefnd hefur ekki verið kölluð saman í vikunni og forseti hefur ekki haft samráð við varaforseta um lengd þingfunda. Hvorki forseti né nokkur annar hafði tjáð mér í gær að til stæði að halda fund lengur en til miðnættis. Því taldi ég mig vera að fylgja réttu fyrirkomulagi með því að slíta fundi í stað þess að gefa ræðumanni orðið sem hefði verið lengra en til miðnættis.“
Hildur taldi sig sem sagt vera að fylgja venjum þar sem (Forseti hringir.) næturfundir eru alger undantekning og engar upplýsingar höfðu borist forseta um að hér ætti að tala inn í nóttina. Ég ætla að biðja þingheim um að verja þær venjur við þingsköp sem hér eru.