fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Virðulegur forseti. Ég finn mig knúinn til að koma hér upp og bregðast við orðum hv. þm. Karls Gauta Hjaltasonar sem beindust gegn forsætisráðherra, að hún hafi ekki sést hér í húsi vikum saman. Það skal áréttað að hæstv. forsætisráðherra hefur verið á hliðarlínunni með okkur þingflokksformönnum meiri hlutans meira og minna í gegnum þá krefjandi samningalotu sem hefur verið á milli þingflokksformanna bæði stjórnarandstöðu og stjórnarmeirihluta. Hún hefur setið með okkur hér næturlangt og verið okkur til stuðnings í þessari vegferð og ég hafna því alfarið og sætti mig ekki við það að hún sé sökuð um að vera einhvers staðar annars staðar heldur einmitt í því hlutverki að reyna að klára þetta með sóma og með þeim brag sem ætti að vera.