156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:18]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Forseti. Ég vil gjarnan ánýja það sem hefur komið fram áður, að það sem gerðist hér í gærkvöldi hefur gerst áður. Það hefur gerst áður að sitjandi varaforseti hafi slitið fundi án þess að forseti þingsins hafi hlutast þar til um, þannig að ég bið menn um að fara rétt með þegar þeir segja fordæmalaust. Þetta er svo óskaplega þjált orð og einfalt að gera, sérstaklega þegar maður hefur verið hér í sjö mánuði heila, að halda því fram að ekkert hafi hér gerst fyrir þessa sjö mánuði. Það er líka annað sem við skulum bara gera okkur grein fyrir. Það er búið að klifa mikið á því að hér hafi orðið valdaskipti í landinu og hér sé stjórn með sterkan meiri hluta og allt þetta. Það gerist á fjögurra ára fresti, stundum oftar og hefur gerst í lýðveldissögunni. Það er ekkert nýtt. Þetta er ekki fyrsta ríkisstjórn á Íslandi sem er með þingmeirihluta og hún er ekkert með ríflegasta þingmeirihluta sem hér hefur sést, síður en svo. Þannig að ég bara bið menn um að ganga hægt um gleðinnar dyr og muna það sem stendur í bókinni góðu sem við ættum öll að fletta í öðru hvoru: Auðmýkt er undanfari virðingar.