156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:19]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég ítreka það sem fram hefur komið hér í orðum þeirra sem hafa talað um mikilvægi þess að virða hlutverk sitt. Ég nefni sérstaklega hv. þm Ásthildar Lóu Þórsdóttur sem sat áður í stól hæstv. varaforseta. Ég er ein af þeim sem tala yfirleitt af miklu stolti og virðingu um starf mitt á þessu þingi og yfirleitt er fyrsta spurning almennings hvort það sé ekki flókið að vera hér og rífast við fólk. Nei, veistu það, það fallega sem gerist hér í þessum sal er þegar fólk getur náð saman og unnið saman utan salar sem og innan hans. Við erum búin að missa það dálítið út úr höndunum okkar núna. Ég held að við getum náð því aftur. Ég held að það fari betur á því, í stað þess að yfirlýsingar séu lesnar upp af hálfu einhvers annars, að þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins komi hér og svari fyrir gjörðir sínar. Annað er óásættanlegt. Ég ber mikla virðingu fyrir hv. þm. Hildi Sverrisdóttur og ég veit að hún talar gegn betri vitund.