156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:21]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér sagði áðan hv. þm. Sigmar Guðmundsson að það væri ekkert talsamband milli þingflokksformanna. Það er bara rétt hjá honum. Ég veit að þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar biðu í allan gærdag eftir að vera boðaðir á fund og voru aldrei boðaðir, aldrei. Ég las hér upp úr yfirlýsingu hv. þm. Hildar Sverrisdóttir rétt áðan þar sem forseti þings hafði aldrei samband í þessari viku við varaforseta til að ræða fyrirkomulag þingfunda. Ég get sagt það, af því að hér hafa forsætisráðherra, þingmenn stjórnarmeirihlutans og ráðherrar farið mikinn í morgun og talað um hvað þau hafa lagt mikið á sig til að ná þinglokasamningum, að fyrsti fundur formanna ríkisstjórnarflokkanna var haldinn 16. júní. Fundur númer tvö var haldinn 18. júní og fundur númer þrjú var haldinn 8. júlí, í fyrradag. (Forseti hringir.) Þetta er allur vilji formanna stjórnarmeirihlutans til að ræða hér við formenn stjórnarandstöðunnar. Þetta voru þrír fundir.