156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:23]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Vegna ræðu hv. 2. þm. Suðurk., Guðrúnar Hafsteinsdóttur og formanns Sjálfstæðisflokksins, þar sem hún vitnar í Facebook-færslu hv. þingmanns og 5. varaforseta Alþingis, Hildar Sverrisdóttur, þá á náttúrlega 5. varaforseta að vera það ljóst að það er búið að taka áætlun Alþingis úr sambandi. Hér hafa verið næturfundir, töluvert margir. Það hvort að forsætisnefnd hafi verið kölluð saman til að ræða þetta fyrirkomulag er bara algjört aukaatriði í þessu máli. Það er forseti Alþingis sem er með dagskrárvaldið, ekki varaforsetar. Varaforsetar slíta ekki fundi nema um það hafi komið bein fyrirmæli frá forseta Alþingis eða þá alla vega þingfundaskrifstofu. Þeir gera það ekki öðruvísi. Það er bara þannig. Ég veit ekki, ég get ekki einu sinni ímyndað mér hvernig Sjálfstæðisflokkurinn á síðasta kjörtímabili hefði brugðist við ef einhver varaforseti þá (Forseti hringir.) hefði sýnt hæstv. forseta Alþingis, Birgi Ármannssyni, þessa vanvirðingu sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir sýndi forseta Alþingis í gærkvöldi.