156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:24]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Ég veit svo sem ekki alveg hvernig hlutirnir voru þegar hv. þm. Þorsteinn Sæmundssyni var hér sem mest í fullu starfi en ég veit alla vega fyrir mig sem nýjan forseta og nýjan þingmann að við forsetar fengum alveg skýr skilaboð þess efnis að þó að við værum á þeim tímapunkti þegar mögulega væri komið að því að slíta fundi þá yrði það aldrei fyrr en forseti Alþingis hefði gefið merki um klukkan hvað ætti að slíta fundi. Þetta er algerlega afgerandi og þess vegna fannst mér einhvern veginn þegar ég fékk þessar fréttir, eins og þið hin, að staðan og ástandið í þinginu hefði náð einhverjum nýjum hæðum þegar svona hlutir, svona reglur eru brotnar í beinni útsendingu. Það vekur ugg og maður spyr sig: Hvert er þetta að fara? Þetta er spurning um trúnað og traust og að geta treyst á hvert annað. Að reyndur þingmaður skyldi skyndilega gera eitthvað sem okkur hinum hefur verið sagt að sé alls ekki í boði kom auðvitað verulega á óvart.