fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Hæstv. forseti. Hv. þingmenn halda áfram naga í fjarstaddan þingmann. Það er leitt. Það væri mannsbragur að því að þeir töluðu við hana þegar hún kemur hér, hv. þm. Hildur Sverrisdóttir, í staðinn fyrir að tala á bak við hana héðan, hafandi sviðsljós sem hún hefur ekki þar sem hún er núna. Það væri meiri mannsbragur að því. En hins vegar ætlaði ég að segja að forseta hvers tíma og núna er vandi á höndum vegna þess að einn af hv. þingflokksformönnum, Viðreisnar líklega, Sigmar Guðmundsson, sagði hér áðan að það væri tilgangslaust að boða til fundar þingflokksformanna áður en eftir því hefur verið leitað. Hann sem sagt sló út af borði allar tilraunir í þá átt að þingflokksformenn ræði saman um ástandið í þinginu. Það er út af fyrir sig áhyggjuefni þegar menn eru óviljugir til þess að setjast niður og ræða saman(Forseti hringir.) og blása það burt án þess að nokkuð liggi fyrir um slíkt. Það finnst mér aðfinnsluvert og áhyggjuefni.