fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Frú forseti. Ég ætla að byrja á að segja að mér finnst frekar skondið að hv. þingmenn meiri hlutans séu að kvarta yfir samfélagsmiðlafærslum því það eru nánast einu samskiptin sem minni hlutinn hefur haft við meiri hlutann. (Gripið fram í.) Kannski bara að hlusta betur hvað hefur verið að koma hér fram, hv. þingmaður. Hæstv. ráðherrar hafa ítrekað birt færslur, rangfærslur á samfélagsmiðlum en koma ekki hingað inn í sal til að tala við okkur, það þótti mér aðeins skondið. En það hefur komið fram og liggur fyrir, að mér heyrist, að það sé enginn raunverulegur vilji til að semja. Það hefur einnig komið fram hjá hv. þingmanni meiri hlutans að þetta eigi bara að vera á ykkar forsendum. Já, hvernig eru samningar? Er ekki verið að semja um hlutina? Ykkur er tíðrætt um valdaskipti líka en það eina sem ég sé — jú, vissulega hafa orðið valdaskipti en í fyrsta skipti er forsætisráðherra sem virðist ekki ná að klára samninga, í fyrsta skipti. Það er það sem er að gerast hérna. (Forseti hringir.) Það er komin til valda ríkisstjórn sem brýtur allar reglur, allar hefðir, fylgir engu, vinnur illa mál og kvartar svo yfir minni hlutanum.