fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Virðulegi forseti. Svo það sé sagt þá er búið að klára 40 mál á þessu þingi þannig að eitthvað er nú að gerast þrátt fyrir að hv. þingmenn stjórnarliðsins tali með allt öðrum hætti. Ég held að allir sem hafa hlustað á þessa umræðu og hlustað á hv. stjórnarþingmenn myndu meta málið þannig að hér væri allt saman stopp en svo er ekki. Það er ekki í fyrsta skipti og verður ekki í síðasta skipti að hv. þingmenn segi: Við höfum áhyggjur af þessu. Við vitum ykkar pólitíska vilja, þið hafið pólitískan meiri hluta til að klára hluti en þið komið með mál seint. Öllum er ljóst að það er illa unnið og við þurfum að fara yfir það.
Svo það sé sagt, talandi um fordæmalausa hluti, þá fer þessi ríkisstjórn ekki eftir lögum um opinber fjármál. Þessi ríkisstjórn vill ekki vinna mál í nefndum. Ég segi það vegna þess að ég hef samanburðinn. Ég hef aldrei séð svona vinnulag, aldrei. (Forseti hringir.) Hvað sem menn vilja gera, hvað sem hv. þingmeirihluti ætlar að gera, ekki sverta hugtakið lýðræði með því að afsaka ykkar vinnubrögð. Þetta hefur ekkert með það að gera.