156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:31]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Hér hafa stjórnarandstæðingar sagt að ekkert nýtt hafi gerst og þetta sé bara eðlilegt ástand, virðist vera. En svo er auðvitað alls ekki. Það hafa verið sett hér Íslandsmet í málþófi. Það gerist auðvitað ekki á hverjum degi. En vissulega eiga þeir eflaust eftir að bæta það. Hér hefur varaforseti bara tekið sína eigin ákvörðun í trássi við vilja forsetans og ekki einu sinni haft sóma til að biðjast almennilega afsökunar á því. Það er alveg ljóst að á þeim tíma sem hún sleit fundi var ekki orðið miðnætti og vel rúmur tími til að halda fleiri ræður ef vilji var til þess. En hitt er undarlegt, að heyra hér þingmenn stjórnarandstöðunnar tala síendurtekið um að það sé enginn vilji til að ná samningum þegar þeir sem fylgjast með þessari útsendingu sjá að það er sífellt verið að gera hlé á útsendingu. Og það er auðvitað vegna þess að þá eru þingflokksformenn að reyna að ná samningum um þinglok. En í sama mund og menn halda þessu fram eru þeir með sviguryrði í garð ráðherra, tala hér um að fólk hagi sér ekki eins og fólk (Forseti hringir.) í ríkisstjórninni. Þannig að ef það er raunverulegur vilji þá taka menn öðruvísi til orða og reyna þá að sýna það hér í orði að (Forseti hringir.) það sé einhver vilji til verka.