fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Frú forseti. Það er best að ræða það sem ekki má ræða undir þessum lið sem er raunverulega fundarstjórn forseta. Ég ætla að leyfa mér að fara inn á svæði sem er eflaust sprengjusvæði, frú forseti. Ef hér hefði átt sér stað sá viðburður og sá atburður sem við sáum um daginn, í fyrrakvöld, þegar hæstv. ráðherra Inga Sæland gerði hér einhverjar tilraunir til eggjandi dans fyrir framan ræðumanninn í pontu, ef við snúum þessum kynjahlutverkum við — reyndar faldi hún sig undir myndavélunum, svo það sé tekið fram, hún stóð þó undir myndavélunum þannig að þjóðin þurfti ekki að horfa upp á þetta. Ef við snúum þessum kynjahlutverkum við þá væri hér allt á hliðinni. Það væri allt á hliðinni, frú forseti, hefði einhver ráðherra af hinu kyninu hagað sér með þessum hætti.