fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Frú forseti. Ég vil undir þessum lið ræða einmitt fundarstjórn forseta og hvetja forseta. Við þurfum að komast í að ræða það mál sem er hér á dagskrá í dag, veiðigjöldin, og ljóst að það er einhver þörf á því að ræða það mál. En á sama tíma vil ég hvetja þá sem eiga hér og ætla að taka til máls í dag undir þeim lið að vera málefnalegir og koma með góðar ræður um þessi mál. Um leið held ég að við gerum okkur öll grein fyrir því að þær ræður sem eftir á að flytja muni ekki breyta þeirri afstöðu sem við í meiri hlutanum höfum og höfum komið hér á framfæri í alls rúmum tíu klukkutíma ræðum, sem myndi nú kannski þykja nóg á flestum dögum. Það er bara komið að því að setja þetta mál í afgreiðslu og ljúka 2. umræðunni, setja það í atkvæðagreiðslu þar sem allir geta gert grein fyrir sínu atkvæði. Málið fer síðan aftur til nefndar ef það þarf að ræða eitthvað frekar í nefndinni og kemur síðan hér í 3. umræðu núna í framhaldinu. Ég vil hvetja þingmenn til að gera þetta (Forseti hringir.) því að okkur er sómi að því að ljúka málinu með þeim hætti eins og er ætlast til af okkur hér á þinginu.