fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Virðulegur forseti. Það blasir auðvitað við öllum að hæstv. forsætisráðherra er algerlega ófær um að ná samningum um nokkurn skapaðan hlut. Hæstv. forsætisráðherra skortir algerlega þann eiginleika sem er nauðsynlegur í fari hvers forsætisráðherra á hverjum tíma, að geta sest niður með fólki og miðlað málum og náð samkomulagi um mál sem ágreiningur er um. Því miður er staðan sú að hæstv. forsætisráðherra er ekki búin þessum, á maður að segja lyndiseinkennum, því miður. Þegar á þetta er bent kemur hingað hv. þm. Ragnar Þór Ingólfsson og bendir á að víst hafi hæstv. forsætisráðherra verið hér dægrin löng og fram á nætur til skrafs og ráðagerða með sínum eigin þingmönnum — með sínum eigin þingmönnum. Hefur verið hér í húsi án þess að gefa færi á sér eða haft frumkvæði að fundum með öllum þingflokksformönnum og átt frumkvæði að því að ná samkomulagi um þinglok.
Hæstv. forsætisráðherra skortir allan myndugleika við stjórn hér í landinu og það endurspeglast hér í skorti á hæfileikum til að ná samkomulagi við þingið.