fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Frú forseti. Ég vildi koma hérna upp og fylgja aðeins eftir þessari samlíkingu á kjarasamningum og samningum um þinglok, hafandi átt aðkomu að, ja, líklega 200 kjarasamningum þar sem verið er að semja um skiptingu þeirrar verðmætasköpunar sem verður í samfélaginu. Það á ekkert skylt með því sem er að gerast hér. Ekkert. Hér er ekki verið að gera kjarasamninga. Hér er ríkisstjórn. Hér er meiri hluti í þinginu sem hefur lagt fram mál og er að fylgja þeim eftir, einfaldlega. En stjórnarandstöðunni er ómögulegt að setjast niður og finna lausn á máli, sama hvað er sagt af þeirra hálfu hér í pontu. Þannig að ég held að stjórnarandstaðan ætti að hysja upp um sig og koma málum þannig fyrir að það sé hægt að klára þetta þing með almennilegum hætti.