fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Forseti. Ég get ekki orða bundist vegna orða hv. þm. Sigríðar Andersen, þingmanns Miðflokksins, sem saknaði þess hér að hæstv. forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, viðhéldi einhverri hefð að sitja hér þegar dregur að þinglokum á fundum með þingflokksformönnum. Ég ætla bara að upplýsa hv. þingmann um að ég var þingflokksformaður hér í sjö ár, lengst af í stjórnarandstöðu, líka í stjórn, líka á meðan hv. þingmaður var hæstv. dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, að aldrei nokkurn tíma settist forsætisráðherra með þingflokksformönnum að samningaborðinu. Hvers lags vitleysa er þetta? Eru menn komnir þannig út í horn að það þarf að búa til einhvern sýndarveruleika hérna til að verja eigin gerðir? Er ekki kominn tími til að líta í spegilinn og átta sig á því í hvaða stöðu minni hlutinn hér er búinn að koma Alþingi, taka síðan saman, fara út í sumarið og skipuleggja sig í vörninni? Ég held að Alþingi væri betur fyrir komið þannig, lýðræðinu, samfélaginu öllu og sennilega (Forseti hringir.) þeim þremur stjórnarandstöðuflokkum sem eru hér ekki að moka ofan í skurð heldur yfir sig líka ofan í skurðinum.