156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:43]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Vegna orða hæstv. atvinnuvegaráðherra hér í minn garð er rétt að taka það fram að forsætisráðherrar á hverjum tíma, svo langt sem ég man og í rauninni löngu fyrir minn tíma hér á þinginu sem hófst árið 2008, allir forsætisráðherrar hafa haft ríka aðkomu að þinglokasamningum. Auðvitað er það best gert með því að veita þingflokksformönnum ríkisstjórnarflokkanna mynduglegt umboð til að ljúka þingi. En hér blasir það við að það er ekki um það að ræða að þingflokksformenn ríkisstjórnarflokkanna hafi umboð til að ljúka þinginu með samningum. Það blasir við. Og að hæstv. forsætisráðherra láti sjá sig til þess eins að kasta hér og hnýta í þingið, í þingmenn stjórnarandstöðunnar, þá sjaldan hún kemur hingað inn í sal og að öðru leyti í fjölmiðlum, sýnir auðvitað algeran skort á myndugleika í þessu embætti.