156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

fundarstjórn forseta og slit þingfundar.

[12:44]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Hér koma menn upp og tala um sorgardag í þinginu. Það er talað um að minnihlutaflokkarnir séu aðgerðaflokkar fyrir auðmenn. Það er talað um sérhagsmunagæslu og það kemur náttúrlega úr hörðustu átt frá formanni atvinnuveganefndar og hv. framsögumanni strandveiðifrumvarpsins, sem hefur náttúrlega engra hagsmuna að gæta í strandveiðunum. Við skulum bara hafa það í huga að það er forsætisráðherra þessa lands, Kristrún Frostadóttir, sem getur ekki landað eða vill kannski ekki landa þinglokasamningum. Það er hún sem ber ábyrgð á þessari stöðu sem er í þinginu í dag, hún og enginn annar. Ef minni hlutinn er að þvælast hér fyrir meiri hlutanum þá er það náttúrlega bara hluti lýðræðis. Það er minni hluti eða meiri hluti. Það er samið. Það er forsætisráðherra landsins sem er hreinlega ekki að standa sig í stykkinu. Hún ætlar bara að ráða með góðu eða illu.

(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að vísa til ráðherra sem hæstv. og þingmanna sem hv.)