fundarstjórn forseta og slit þingfundar.
Herra forseti. Það er kostulegt að hlusta á hvern þingmanninn á fætur öðrum koma hér og kenna hæstv. forsætisráðherra um stöðuna í þinginu. Hana skorti myndugleika. Á hún að vera hér með svipu og berja okkur hérna áfram? Myndugleika til hvers? Það er margoft búið að lýsa því yfir í fjölmiðlum og í ræðupúlti að það verði ekki samið um neitt nema við gefum eftir í veiðigjöldunum. Við erum bara ekki að gefa eftir í veiðigjöldunum, það liggur fyrir. Við erum réttkjörinn meiri hluti og við höfum rétt á því að ganga til atkvæða um það sem við viljum leggja áherslu á. (Gripið fram í: Gerið það þá.) Við þurfum að komast í atkvæðagreiðsluna, (Gripið fram í.) það er bara staðan. Við þurfum að komast í atkvæðagreiðsluna og við munum komast í atkvæðagreiðsluna.