156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[16:41]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég tel rétt að koma hér upp og skýra frá því að þegar ég var hér sem varaforseti í gærkvöldi hafði ég engar upplýsingar aðrar en að fylgja reglunum í þeim aðstæðum eins og þær blöstu við mér. Ég hef gert forseta og forsætisnefnd grein fyrir þessu og tel að það sé ekki ástæða til þess að það mál svo sem gangi lengra að svo búnu.

Ég vil þó hins vegar fá að nota þetta tækifæri, frú forseti, og gera alvarlegar athugasemdir við hvernig hæstv. ráðherrar í ríkisstjórn Íslands töluðu um mig í ljósi þessa atviks eins og þeir gerðu í morgun. Og fleiri en einn og fleiri en tveir. Það var ekki eingöngu þolað af hálfu meiri hlutans heldur var það beinlínis stutt og hvatt áfram. Orðin sem voru látin hér falla eru alvarleg, þau eru ógeðfelld, þau eru þinginu ekki til sóma. Ég verð að fá að segja að það er mikið miður að stjórnarmeirihlutinn hér horfir ekki inn á við til að horfast í augu við sína ábyrgð og þá stöðu sem er hér í þinginu og þá vangetu að ná hér samningum. Það stendur ekki á okkur. Við erum höfð fyrir rangri sök í fjölmiðlum. Þetta er alvarlegt ástand. Það er kominn tími til að meiri hlutinn axli ábyrgð á eigin vangetu, að leiða hér hluti í jörð eins og allir meiri hlutar hafa gert í áratugi. Og ég frábið mér málflutning sem er viðhafður hér okkur til handa í stjórnarandstöðunni þegar við erum að sinna lýðræðislegu hlutverki okkar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)