takmörkun umræðu.
Önnur umræða um frumvarp atvinnuvegaráðherra um veiðigjald hófst 14. júní sl. og er enn ólokið. Hefur 2. umræða staðið yfir í rúmar 130 klukkustundir og fluttar hafa verið 2.510 ræður um málið. Á vegum þingflokksformanna og formanna stjórnmálaflokkanna hefur ítrekað verið leitað leiða til samkomulags um meðferð málsins og þinglok. Er nú svo komið að fjöldi annarra þingmála bíður þinglegrar meðferðar og langt er komið fram á sumar. Ég tel ekki rétt að rekja hér meðferð málsins, hún ætti að vera öllum kunn. Forseti telur þó rétt við þessar aðstæður að beina athygli þingmanna að hlutverki Alþingis og skipulagi þingstarfa.
Alþingi er fulltrúarsamkoma þjóðkjörinna fulltrúa og er á þeim grundvelli lýðræðislegur vettvangur fyrir þau mál sem þar eru tekin fyrir, hvort sem um er að ræða löggjafarmálefni, meðferð fjárstjórnarvalds, meðferð utanríkismála, umræður um þjóðfélagsmál, ályktanir um einstök málefni eða eftirlit með störfum framkvæmdarvaldsins. Sú lýðræðislega krafa er gerð að Alþingi, sem æðsta valdastofnunin og einn þriggja handhafa ríkisvalds samkvæmt 2. gr. stjórnarskrárinnar, fái sinnt þessu hlutverki. Á grundvelli meginreglunnar um sjálfræði Alþingis, sem sækir grundvöll sinn í ákvæði stjórnarskrárinnar um Alþingi, setur þingið sér reglur um skipulag sitt og starfshætti. Sjálfræði þingsins er undirstrikað í 52. og 58. gr. stjórnarskrárinnar um að Alþingi kjósi sér forseta sem stýrir störfum þess og í því að Alþingi setji sér sjálft þingsköp um starfshætti sína. Valdheimildir forseta sækja grundvöll sinn í nefnd stjórnarskrárákvæði. Þó verður lögð áhersla á að þingsköp mega ekki ganga gegn því hlutverki forseta Alþingis að stýra störfum Alþingis og að tilgangurinn að baki setningu þeirra hljóti að byggja á því grundvallaratriði að þingið geti gegnt lýðræðislegu hlutverki sínu. Forseti hefur því skyldu til þess að beita valdi sínu þannig að þingið starfi í samræmi við stjórnarskrá, þingsköp og önnur lög. Jafnframt ber honum að stjórna umræðum og sjá um að þar fari allt fram með „góðri reglu“. Er þetta áréttað í 1. mgr. 8. gr. og 73. gr. þingskapa Alþingis.
Ákvæði stjórnarskrár um réttindi þingmanna, til að mynda 48. gr. um sjálfstæði þingmanna í störfum og um tjáningarfrelsi þeirra, sbr. 2. mgr. 49. gr. eða skv. 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 73. gr. stjórnarskrár, girða ekki fyrir að forseti geti við fundarstjórn gripið til ráðstafana sem takmarka tjáningarfrelsi þingmanna samkvæmt þingsköpum, sbr. 71. gr., 73. gr. og 98. gr. Enda er tilgangur slíkra valdheimilda að tryggja að Alþingi geti sinnt störfum sínum í samræmi við lýðræðislegt hlutverk sitt. Einkenni þessara reglna er að þær eru ekki settar í þágu einstakra þingmanna heldur Alþingis sem heildar. Ákvæði af þessum toga hafa verið í þingsköpum Alþingis alveg frá 1876. Forseti undirstrikar að við beitingu þessara heimilda ber honum að gæta að rétti þingmanna til þess að taka þátt í umræðum og tjá sig um einstök mál enda er Alþingi einstakur vettvangur fyrir umræður í lýðræðislegu þjóðfélagi og hefur grundvallarþýðingu sem slíkt. Í hlutverki forseta felst samkvæmt framansögðu að stjórna umræðum með það að markmiði að þingmenn hafi jöfn tækifæri til þess að taka þátt í þingstörfum, leggja fram þingmál og taka þátt í umræðum um þau. Honum ber að gæta þess að þingmenn fái tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í umræðum um einstök mál og eins og áður greinir að sjá til þess að gætt sé góðrar reglu í umræðum og að störf þingsins séu í samræmi við ákvæði stjórnarskrár, þingskapa og annarra laga. Í þessu felst jafnframt að gæta þess að þau þingmál sem styðjast við vilja meiri hluta þingmanna eða eru lögð fram í krafti stjórnarmeirihluta fái tilhlýðilega umfjöllun og framgang í þinginu. Er það í samræmi við lýðræðislegt hlutverk Alþingis.
Í 71. gr. laga um þingsköp Alþingis eru heimildir til þess að takmarka umræður um einstök mál. Í 1. mgr. er mælt fyrir um úrskurðarheimildir forseta til þess að takmarka umræður dragist þær úr hófi. Af forsögu ákvæðisins er ljóst að því var ætlað að taka til þess þegar forseti úrskurðaði um ræðutíma þingmanna þegar umræður hefðu dregist fram úr hófi, en þá var ræðutími þingmanna ótakmarkaður til að mynda við 2. umræðu. Var svo allt til 2007 þegar ræðutími þingmanna var takmarkaður við fimm mínútur við 2. umræðu án takmarkana á því hversu oft þingmenn gátu komið upp í máli. Tilgangurinn var að setja skorður við löngum þingræðum. Ljóst er hins vegar eins og dæmin sýna að slíkt fyrirkomulag getur leitt til þess að umræður dragist á langinn náist ekki samkomulag um afgreiðslu þeirra. Í 2. mgr. 71. gr. er aftur á móti gert ráð fyrir því að forseti geti einnig lagt til að umræðum sé hætt hvort heldur í byrjun umræðu eða síðar eða umræðum um mál skuli lokið að liðnum ákveðnum tíma. Af forsögu ákvæðisins er ljóst að hér var um að ræða sérstaka heimild til þess að setja lengd umræðna skorður. Slík ráðstöfun felur í sér takmörkun á tjáningarfrelsi þingmanna þrátt fyrir að þar sé ekki vísað til þess að „umræður dragist úr hófi“ eins og segir í 1. mgr. Takmörkun á tjáningarfrelsi þingmanna þarf að byggja á lögum, verður að vera nauðsynleg og byggjast á lögmætu markmiði. Í því sambandi er unnt að horfa til að umræða hafi dregist úr hófi, tryggja þurfi starfhæfni Alþingis til þess að sinna sínum stjórnarskrárbundnu verkefnum, vernda réttindi annarra og aðkallandi hagsmunir kalli á beitingu þess eða mál séu afgreidd fyrir tiltekinn tíma.
Heimildum 71. gr. þingskapa til þess að takmarka lengd umræðna beitir forseti aðeins að vel ígrunduðu máli og á grundvelli málefnalegra sjónarmiða. Ákvæðinu hefur ekki verið beitt eftir að Alþingi var gert að einni málstofu 1991. Frá þeim tíma má finna nokkur dæmi þess að umræður um einstök mál hafi dregist á langinn, en yfirleitt hefur náðst samkomulag um afgreiðslu þeirra.
Nú hafa umræður um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald á yfirstandandi löggjafarþingi staðið í heild yfir í tæpar 160 klukkustundir þar sem 3.392 ræður hafa verið haldnar. Forseti telur að enn sé langt á milli manna og að ekki verði lengra komist í viðræðum þingflokksformanna eða formanna stjórnmálasamtaka um samkomulag um afgreiðslu málsins. Ljóst er að mati forseta að þingmenn hafa haft rúman tíma til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri um málið og eftir atvikum að koma fram með tillögur um breytingar á því. Aðkallandi er að þingstörfum verði framhaldið og að þingmenn fái tækifæri til þess að taka þátt í þeim í samræmi við hlutverk sitt samkvæmt stjórnarskrá og þingsköpum. Í því ljósi leggur forseti til á grundvelli 2. mgr. 71. gr. þingskapa Alþingis að umræðunni verði hætt.
Verður tillagan nú borin umræðulaust undir atkvæði.