takmörkun umræðu.
Forseti. Ég virði ákvörðun forseta. Alþingi Íslendinga er einstök lýðræðisstofnun með glæsta sögu sem nær aftur til ársins 930 og við í þessum sal berum sameiginlega ábyrgð á störfum þess. Alþingi verður að virka. Þingið verður að virka. Við leiðum mál til lykta í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu. Það er ástæða fyrir því að 71. gr. þingskapalaga er sjaldan beitt en það er líka ástæða fyrir því að þetta ákvæði er í lögum. Ef svo væri ekki þá hefði minni hlutinn neitunarvald á Alþingi. Minni hlutinn hefur ekki neitunarvald á Alþingi. Það var aldrei hugmyndin í stjórnskipun Íslands enda hefði það alvarlegar afleiðingar fyrir lýðræðið í landinu.
Forseti. Nú göngum við til atkvæða. Það gerum við af virðingu hvert fyrir öðru, ólíkum sjónarmiðum og leikreglum Alþingis.