takmörkun umræðu.
Frú forseti. Ég harma þessa tillögu forseta. Þetta eru alvarleg tímamót í íslenskum stjórnmálum. Ríkisstjórnin hefur tekið ákvörðun um að nota úrræði sem á allra síst að nota í lýðræðisríki, svokallað kjarnorkuákvæði 71. gr. þingskapalaga. Það er ástæða fyrir því að ákvæðinu hefur ekki verið beitt í 66 ár. Það er talið svo íþyngjandi inngrip í þingræðið og málfrelsi þingmanna að það á einungis að vera notað í ýtrustu neyð. Ég get ekki séð að sú neyð sé hér. Það er engin þjóðarvá fyrir dyrum. Kristrún Frostadóttir er þar með fyrsti forsætisráðherrann í 66 ár sem mistekst að miðla málum á Alþingi. Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra, hennar ríkisstjórn og virðingu þeirra fyrir Alþingi Íslendinga.