takmörkun umræðu.
Virðulegi forseti. Ég er dapur yfir að koma hér inn sem varaþingmaður og upplifa það að við skulum ekki hafa náð ásættanlegri lendingu í þessu máli og séum komin á þann stað að búið er að grípa til 71. gr., þrátt fyrir að í gær vissi ég ekki betur en að enn væri verið að ræða málamiðlun í málinu. Framsókn hefur lagt til tillögu sem hefur ekki komið hér til umræðu. Reynt hefur verið ítrekað að leiða í jörð og ná saman á milli fólks. Við erum komin á þennan, leyfi ég mér að segja, skelfilega stað. Ég sagði í gær að yrði gripið til 71. gr. myndi það hafa þau áhrif að það yrði bergmál inn í alla framtíð í þinginu. Nú erum við komin þangað. Þetta er varhugaverð vegferð sem ég er alfarið á móti og það er vandséð hvernig næstu þing, næstu þingvetur verða ef þetta fordæmi er hér sett.